Á Stór- Hafnarfjarðarsvæðinu........
Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan
12.03.2008 22:18:16 / Ólöf

Hæhe

Hef fært bloggið mitt 

http://loa.blog.is/blog/loa/

sé ykkur þar

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 20:31:27 / Ólöf

Búaballið

Þetta %#&="T blogcentral er að gera mig brjálaða og ég er farin að íhuga alvarlega að færa mig. Stundum sest ég niður og byrja að blogga en svo gufar allt upp og þetta nýja sístem er ekki til að laga þetta. En búaballið var í gær. Við fórum ásamt þeim bræðrum mínum og mágkonum og fleira góðu fólki. Þetta var að flestu leiti gott kvöld Ég hef ekki farið á svona samkomu í 10 ár og reyndar ekki farið nema 3var áður. en núna fór ég á matinn í firsta skipti. 'Eg verð að nöldra svolítið þó þetta hafi verði að flestu leiti gott. Þegar maður fer út að skemmta sér fyrir þennann pening þá á maður að fá það í gæðum fyrir peningana sem maður leggur út. En það var ekki. Maturinn var svona í lagi ég meina lambakjöt klikkar sjaldan en eftirrétturinn var slys og ég myndi skammast mín fyrir að bera þettta fram. Hljómsveitinn var svo kapituli útaf fyrir sig en hún hefur sennnilega verið grafinn upp í fornleifa uppgreftri eitthverstaðar þvílíkt var lagavalið og standardinn. En þetta var bara tuð ég veit það.  En ég á ekki vona á því að fara á matinn að ári  miðað við þetta. Ég er vön svona hátiðum á góugleði á Hólmavík og þar er talsvert hærri matarstandard fyrir sama pening. Tengdó var hér í dag þau eru stödd hérna fyrir sunnan núna og voru í jarðafara stússi og læknisstússi. Þau eru að fara á morgunn og  fá vonandi gott ferða veður. Vegna kvefs og bágs heilufars erum við lítið í heimsóknum enda á maður ekki að vera hnerrandi og hóstandi yfir fólki sérstaklega veiku fólki en þess í stað reynum við að senda þeim Guðbjarti og  Báru hlýjar hugsanir og góða strauma í veikindum hennar og við komum í heimsókn strax og við erum  fær til þess og reynum að vera  reglulegu í símasambandi þangað til það verður í lagi. Guð geymi ykkur

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2008 20:20:47 / Ólöf

Sjónvarp símans loksins komið á

Húsið mitt stendur hátt uppá hæð og útsýnið er frábært. En þar sem gott útsýni er er að sjálfsögðu ekki logn. En ég er ekkert neitt uppvæg yfir því. Bjó í mesta rokarassgati landsins í 22 ár svo þetta er ekki slæmt. En það sem ég er búin að kynnast er að versta áttin hér er akkúrat áttin sem snýr beint á það sem diskurinn á að vera. Við erum ekki en búin að koma honum fyrir aðalega vegna þessa atriðis því þó Langadalsströnd sé rokarrrrrrrr þá var diskurinn þar í kokkalegu skjóli. Svo rann það upp fyrir okkur að sennilega myndi ekkert vera horft sérlega mikið á imbann í vetur því við vinnum bði langan vinnudag og Sivi er oftast að vinna á kvöldinn og þau hina eiga að drullast til að læra en ekki að glápa á sjónvarp. Svo af því að við erum með Adsl bara nokkuð gott þá ákváðum við að fá sjónvarp símans og ég panntaði það 3 jan. Var sagt að það kæmi innan 10  daga. Ok. Eftir  tvær vikur fór ég aðforitnast þá var mér sagt að það væri svo langur biðlisti að það væri minnst 20 dagar. Jæja svo hringdi ég aftur  eftir mánuð . Var sagt að það væri svo langur biðlisti að það væri ekki en búið að afgreiða þá sem pöntuðu fyrir jól. Já . Ég hef hringt öðru hvoru og þá var þetta í vinnslu. Svo hringdi ég fyrir viku og var frekar sorry orðin. Þá kom í ljós að ég var bara týnd í kerfinu  en það átti að haf asamband eftir helgi . Ég hringdi á þriðjudaginn  þá var mér sagt að það væri búið að afgreiða þetta og þetta kæmi bráðum. Búið að senda þetta á verktakana. En það hefði verið gert í gær það er mánud. ég var svo dónalega að ég spurði hvort von væri á þessu fyrir haustið því ég hefði séð þá auglýsa blessað sjónvarpið sitt kvöldið áður og mér þætti þjónustan vægast sagt afleit. Væri með 4 síma hjá þeim sem og nettengingu og þetta væri ekkert grín lengur. Alla vega ekki þjónusta sem þeir ætttu að auglýsa. Það var hringt í mig eftir klukkustund ég beðin afsökunnar á öllu saman og tengingin er komin;);););)  jæja svo er nú það . Það er leiðinlegt að þurfa alltaf að vera dónalegur eða háskur ,jafnvel hótandi svo fólk vinni vinnuna sína því það er svo merkilegt að það er eins og sumir skilji ekki að þetta er þjónusta sem maður er að kaupa og hún kostar sitt og þegar hún er léleg er ekki endilega sjálfgefið að kúnnarnir haldi áfram kaupa hana eða gefist uppá að bíða eftir að fá viðkomandi þjónustu en hér hef ég þó séns á að snúa mér annað það er bara fúlt að þurfa að hóta slíku til að fá það sem í boði er og maður vill fá..og það var það sem ég ætlaði að gera í næstu viku ef ekki rofaði til...:$

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 21:46:42 / Ólöf

Sund er gott


Við hjónin erum svo heppin að það er góð sundlaug hérna í nágrenninu og svo á að fara opna aðra bráðum á völlunum svo þá verður nú aldeilis hægt að synda. Okkur gengur frekar illa að sofa út um helgar vegna þess að maður er jú búin að venja sig á að vakna 7. þannig að núna er farið í sund og púl þegar búið er að sötra morgun kaffið og lesa blaðið. Tvisvar í viku er svo farið eftir vinnu og núna í kvöld var einmitt svoleiðis kvöld. Heiti potturinn þeir eru að vísu margir en sá  heitasti er alveg frábær og maður nánast sýður í honum eftir að hafa svamlað nokkrar ferðir. Ég hef að vísu ekki synt í mörg ár svo heitið geti en meðan ég bjó í Bolungarvík fór ég reglulega í sund og saknaði þess ferlega þegar ég flutti í burt Ég þarf bara að fara að draga Önnu systur með mér í sundið þó ekki væri nema til að parkera henni í heitupottunum.  .Ég sakna að vísu heita pottsins á Nauteyri en það verður líka að hafa eitthvað til að sakna.  Það er fallegt vetrar veður núna og gaman að fara út en saltið maður sem er sett á göturnar svei mér þá það er hrikalegt . Í þessu frosti er snjórinn eins og krap á götunum. Álfhildur og Þór voru að koma frá Danaveldi í nótt og komu seint og fóru þar að leiðandi snemma vestur þannig að við hittum þau ekkert. Sáum bara ferðatöskurnar í morgun. Já svo renndum við til Keflavíkur á laugardaginn erum búin að vera lengi á leiðinnni þangað. En svo þurfti ég að komast í búð þar svo þá var ekkert um annað að ræða en að bregða sér. Það lá vel á þeim gömlu og gaman að hitta þau en svo stendur nú til ferming þar á svæðinu á næstu helgi svo þá verður stormað þangað suðureftir á ný.:d

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 19:17:33 / Ólöf

Pæling

Við fórum út að borða saman hjónin í gærkvöldi. Fórum á Argentína Steikhús og borðum dýrindis T-bone steik , algjört sælgæti. Í dag er fallegt veður og snjóteppi yfir öllu ,svo kyrrt og fallegt veður. Við fengum okkur göngutúr og kíktum í kaffi hjá Önnu og Stjána. Þar var fótbolti í gangi svo það teigðist úr dvölinni.  Ég var að hlusta á fréttaflutning af fundum um væntanlega olíuhreinsistöð. Ég veit ekki. Sko ef það á að vera fólk búsett á vestfjörðum í framtíðinni þá þarf það vinnu og vinnu sem ekki er seld í burtu í formi kvóta eða niðurskurðar aflaheimilda. Og að tala um sjónmengunn. Hvað er sjónmengun?? Eru  ekki hálfhrunin hús sjónmengunn .? Er ekki vegur sjónmengun? Ef olíuhreinsistöð skemmir ímynd Vestjarða er þá nokkra ímynd að skemma ef engin býr eða getur haft möguleika á að búa þarna. Ef Vestfirðingar vilja olíuhreinsi stöð  hversvegna er það ekki í lagi?? :$ Þarf virkilega þettta forræðisfólk sem situr á hér í glerhöllunum sínum og veit ekkert hvað það er að dýfa hendi í kalt vatn að skipta sér að því?? Ekki býr það þarna og ef það heldur að hægt sé að éta ímyndina eina og verða saddur þá ætti það bara að prófa það...:evil:  Og hér eru fullt af vikilega ljótum byggingum sem eru sko sjónmengun og vil ég þá sérstaklega nefna húskofaskríflin sem eru við Laugaveg og víða í gamlabænum í Reykjavík... Og svo er talsvert af nýjum byggingum á þessu svæði sem eru algjör horror á að líta og virkileg sjónmengun eins og borgarleikhúsið t.d.
Það fólk sem hefur hvað hæst í þessu eru leikarnir og listamennirnir. En þetta blessað fólk sem flest vinnur í leikhúsum sem eru ríkstyrkt því annars gengju þau ekki og hvaðan koma styrkirnir nema úr okkar vasa. Ef við höfum ekki vinnu hvort sem það er álversvinna eða olíuhreinsistöðvarvinna þá förum við ekki í leikhús því þetta væri sennnilega það firsta sem við slepptum að gera. OG þá held ég að þetta blessað fólk yrði að fara að leita sér að annarri vinnu eins og að sækja um í Álverinu. Ekki  þýðir að sækja um vinnu í ferðamannabransanum því sú vinna er bara 2-3 mánuði á ári. Og hún er meira og minna á styrkjum þar að auki :s  En sennilega má maður ekki tala svona því að nú á ég sennilega sem burtflutt að að fara að berjast fyrir því að allt verði nú óbreitt á æskustöðvunum og jafnvel bara að fólkið flytti í torfkofana aftur og legði af símann og þess háttar þægindi eins og rithöfundur einn sem mikið er í tísku í dag stakk uppá á fundi útá landi  fyrir ekki löngu. Honum fannst að þetta væri sú ímynd sem bændur ættu að selja aðgang að sér útá.  Hann ætti þá að byrja og fara að skrifa með fjaðurstaf.....Sýna gott fordæmi   En í það minnsta verð ég sjálfsagt að fara að finna mér húskofaskrífli vestur í djúpi  sem ég get farið að berjast fyrir friðun á  ,það er svo  mikið  inn....


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 22:16:45 / Ólöf

Hækkandi sól

Jæja það er best að blogga eitthvað. Ég hef verið ferlega löt að blogga og ég býst ekki við að það lagist. 'Eg hef setið við bókhald undanfarin kvöld eins og það er skemmtilegt eða hitt þó heldur.  Búin að fresta því eins lengi og hægt er. :$  Við stóðum í flutningum um síðustu helgi með Palla okkar og hans spúsu og svei mér ef ég var  bara ekki þreitt fram á þriðjudag. Annars er að birta og þá er svo gott að labba út úr Húsasmiðjunni og allt er bjart meira að segja sólskin í dag. Við Tína sem vinnur með mér tókum okkur til um síðustu mánaðarmót þó aðalega fyrir suðið í Tínu og fórum að fara í Ræktina og viti menn eftir einn tíma ákváðum við að fá okkur árskort og núna förum við eftir vinnu tvisvar í viku og púlum á tækjum og syndum svo á eftir í suðurbæjarlauginni og það er frábært. Stundum förum við í sund sem þriðju ferð og núna er Reynir farin að fara með okkur svo þetta lítur allt vel út. Tína vonast til að geta dregið eiginmanninn þegar vorar með, en honum finnst kalt úti núna og heldur að hann frjósi enda kominn af suðlægari slóðum. Á morgun á að vera partý í vinnunni vegna þess að við urðum verslun mánaðarins í des og það í firsta skipti og menn glaðir með það ,svo þá þurfum við Tína sennilega að bæta við aukaferð til að bæta fyrir það..8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 21:23:25 / Ólöf

bla bla bla bla

Þorrablótið var nokkuð gott þó svo að maturinn hafi nú ekki verið neitt spes fremur en ég reiknaði með. Eftir miðnættið fórum við svo í partý í Grafarvoginn og vorum þar talsvert fram eftir nóttu. Jæja Nú eru Palli og Anja að flytja milli íbúða og það er talvert rask eins og gefur að skilja. Við fórum í gær , fengum lánaðann sendiferðabíl hjá Gunna og fluttum slatta milli íbúða.  Það þarf svo væntanlega að fara aðra umferð þar til allt er flutt.  Í dag er asahláka og sleipt. Vetrarfrí er að skella á hjá skólafólkinu á heimilinu. Annars er ég orðin frekar leið á þessum umhleypingum og verð að viðurkenna að ég dauð öfunda þá bræður mína sem eru farnir í sólina núnaVilli Gummi og þeirra konur til Kanarí og Raggi og frú í Karíbahafið.:haha::haha::haha: Binni yfirmaður minn var að koma frá Dómíníkansaka lýðveldinu og er brúnn og sællegur ,heldurbetur. :haha: svo það væri gott að fá sól . Ég held bara að ég skipuleggi ferð að sama tíma að ári í karíbahafið.8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 12:19:44 / Ólöf

Sviftingar í veðri

Það var sko fjör í veðrinu í gær þegar hlánaði og allur þessi klessingur sem hefur verið smurður hérna yfir allt fór að bráðna. Það var líka talsverður vatnselgur á götum og hreinlega tjarnir sumstaðar. Við hjónin höfðum ákveðið fyrir löngu að fara í bíó þetta kvöld og létum smá gust og rigningu ekki stoppa okkur enda oftséð það svartara á ferðalögum og allt í lagi meðan úrkoman er í rigningar formi en ekki snjó. Svo við brunuðum í Breðholtið og fórum á Dead at the funeral og hún var mjög góð. Hægt að hlægja hressilega og gott veður í bíóinu:haha: Núna er að sjálfsögðu kominn snjór aftur og veturá ný. En annars er allt í góðu og bara lífið ósköp rólegt. Það er samt að styttast í að ég þurfi að drullast til að setjast við bókhaldið sem ég er ekki búin að vera að nenna að skoða síðan í haust en núna er víst ekki hjá því komist að fara að byrja. Mig dreymdi annars Einar frænda minn í nótt. Skrítinn draumur ég man nefnilega ekki til að mig hafi dreymt hann fyrr síðan hann dó fyrir rúmum 20 árum. Reyndar hefur mig dreymt mikið undanfarið, er berdreyminn en fæ samt alltaf góð frí frá slíku á milli en mig dreymdi þannig fyrir stuttu að ég er hrædd um að það sé eitthvað mjög slæmt að hellast yfir bændur landsins en ég vona nú samt að svo sé ekki. En ég þurfti núna á dögunum að ákveða hvenær ég færi í sumarfrí og mér var í raun skammtaður Ágúst sem þýðir að næst fæ ég júní ef ég verða ennþá að vinna í Húsó. Það er allt í lagi með ágúst en ég bað samt um viku frí í maí því ég ætla að fá að skreppa eitthverstaðar í sauðburð ef eitthver vill fá mig því mér finnst það alltaf skemmtilegasti tími ársins og þó ég sé búin að yfirgefa stéttina heldur áfram að vera gaman í sauðburði..;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 21:32:09 / Ólöf

Í miðri viku

Það er vetrarlegt núna. Kalt en gott veður í dag. Það hefur verið rólegt að gera í vinnunni en þar á móti er fólkið að hrynja niður í gubbupest og það er því mikið að gera hjá okkur hinum á móti. Annars varð litli drengurinn minn 18 ára í dag og þá nennti ég ekki að elda og ákvað að bjóða liðinu út að borða í staðinn svo við fórum á Kínastað og úðuðum í okkur prjónamat sem var bara nokkuð vel lukkaður. Palli og Anja voru með okkur líka og prjónlesæfingarnar voru skemmtilegar. Það á að vera þorrablót hjá mér þann 9. febrúar og ég ætla að láta það nægja í þorramatsáti þetta árið. Er ekki mikill aðdáandi þorramats. Annars eru allir að tala um þennann snjó sem er að plaga fólk núna. Ég sé nú ekki þennann snjó. Þetta er svona jafnfallið yfir allt og svo eru svona haugar sem hafa verið hreinsaðir af götunum. Ekki snjór svo neinu nemi. En núna er stefnt á Ladda á sunnudagskvöldið og það er tilhlakk. :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 15:35:25 / Ólöf

skítatíð

Það er allt gott að frétta. Veðrið er búið að vera snarvitlaust en það er ekkert óvenjulegt ástand. Það er asahláka núna eftir að búið er að snjóa mikið undanfarna daga. Mig hefur dreymt þannig að þetta kemur mér ekkert á óvart. Tel reyndar að það eigi eftir að vera  enn meiri skítatíð framundan. :$ Spaugstofan var frábær í gær , sú langbesta í vetur. Tók frábærlega á stjórnarfarsanum í Reykjavík..Illugi var líka nokkuð góður í gærmorgunn í 24stundum. Þar sem hann ræddi muninn á lýðræði , tjáningarfrelsi og fundarstjórn og ég get ekki verið honum meira sammála. Það er nefnilega ótrúlegt að hlusta á umræðuna um það sem skeði í ráðhúsinu og mótmælin þar. Þetta voru "kommúnistar" sem voru með skrílslæti. Sem sagt í breska þinginu eru sem sé skrílslæti daglega eftir þessu að dæma. Ég hef aldrei skilið hvers vegna ekki voru mótmæli í haust þegar meirihlutinn sprakk þá. Þá var virkilega tilefni til líkt og núna en sennilega hafa menn óttast að vera kallaðir "kommúnistar" og það er skammaryrði. Heilsufarið er að komast í lag og mannskapurinn óðum að ná sér á heimilinu en það hefur gengið misvel eins og oft vill verða........


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 14:31:42 / Ólöf

Smá pólitík

Ástandið hefur í raun ekki lagast á heimilinu.. Ég var orðin sæmilega hress í gær var bara með nokkrar kommur og hafði hugsað mér að fara í vinnu en þá byrjaði ballið. Reynir kom heim veikur.. Indriði byrjaði klukkutíma seinna og Sædís nánast á sömu mínútunni.. Og að lokum kom svo Sivi heim kl 1.00 og byrjaði fljótlega og það sem eftir lifi nætur voru fáir sem sváfu á heimilinu og þegar ég fór á fætur kl 7 var ég úrvinda og skilaði frá mér því sem ég hafði nærst í gærkvöldi og skreið uppí aftur eftir að hafa látið vita í vinnuna að ég væri enn á lífi.:cry: Það vildi til að Anna elskuleg systir mín miskunnaði sér yfir okkur og færi okkur Kók eftir hádegið og risið er heldur að lyftast yfir mannskapnum. Þetta eru verstu veikindi sem ég hef upplifað síðan um jólin hérna um árið. Þá þurfti að svortera hver var minnst veikur til að senda í húsin. En ég held að veikindi séu víða því miður. Meira að segja pólitíka veikindi.. Þau hafa birst hérna undanfarna daga í borginni og ekkert smá. Ég var alltaf mjög hrifin af Vilhjálmi sem stjórnmálamanni . Fannst hann alltaf mjög málefnalegur og gætinn og var bara nokkuð sátt þegar hann varð borgarstjóri. Einnig var ég mjög sátt við flest af því fólki sem hann var með á lista hjá sér sérstaklega konurnar sem voru skörunglegar og velmenntaðar konur. Ég ætla nú ekki að hæla Gísla sérstaklega hefur alltaf fundist hann frekar spjátrungslegur en það er bara mín sérviska. En þvílík vonbryggði. Konurnar hafa valdið mér mestum vonbryggðum og þegar allt hefur verið talið hafa þetta reynst vera þvílikir uppskapningar upp til hópa að það hálfa er nóg. Mér kom ekkert á óvart í haust þegar Rei málið var þar reyndu allir að skara eld að eigin köku og reyndu svo að bjarga sér á hundasundi og drekkja helst sundliðinu sínu í leiðinni. Ég hef nú fram að þessu ekki verið sérlega hrifin að Degi né Svandísi en svona breytast hlutirnir. Og Margrét blessunin sem var í pólítískum þúfnagangi í fyrra sýnist mér vera að rísa upp aftur sem stjórmálamaður..;) Það er ansi laslegur meirhluti sem nú var myndaður og hafi meirhluti  eitthverntíman verið slappur þá er hann ekki björgulegur núna og vonandi að menn þurfi ekki að leggjast verða veikir og leggjast inná eitthverja deild fljótlega svo farsinn haldi ekki áfram því það eru nógir borgarstjórar á launum þó þeim fjölgi ekki. Og Villi hefur heldur betur glatað mínu trausti og fær það ekki aftur. Mér dettur reyndar helst í hug smala sem er að reka sjúkt lamb til slátrunnar þegar hann teymir haltann sauðinn sinn áfram núna...:$


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 15:42:42 / Ólöf

Óþolandi ástand,,,,,,,

Á þessum degi ligg ég heima í vesöld. Fékk ælupest eins og það er geðslegt. Þurfi að skreiðast heim úr vinnu fyrir lok á mánudaginn og var dauð í gær með 39 stiga hita. Ég held ég hafi ekki verið svona veik í mörg ár :S Er samt að reyna að koma í mig heilsu svo ég komist í vinnuna á morgun, Þoli ekki veikindi. Bara þoli þau ekki.. ER að lesa í dag bók eftir Yrsu Sigurðardóttur sem kom út úr jólapökkunum. Hún fjallar um hús sem grafið er upp eftir Heimaeyjargosið og eitthverja spúki atburði þar um og viti menn þegar ég kveikti á útvarpinu í morgun reyndist þá ekki vera kominn 35 ár síðan gaus. Ég man það enn þann morgunn. Var í skólanum og vaknaði við það um morgunninn eða snemma um nóttina að Alla og Torfi voru með útvarpið hátt stillt hinum meginn við vegginn. Man enn eftir æsingnum og spennunni sem var í loftinu þann daginn, Fannst þetta samt eitthvað svo óraunverulegt. Ég man eftir að þegar gefið var frí og við fengum að horfa á auka fréttatíma með myndum af gosinu og allar í svart hvítu... Þetta þótti manni alveg svakalegt og vonaði að allt færi vel og það merkilega var að það lánaðist ótrúlega að koma öllum í burtu slysalítið. Ef ég man rétt dó einn maður af völdum gossins og þá vegna þess að hann fór inní hús þar sem var eiturgufa, Vá hvað er orðið langt síðan . Eða ég að verða gömul:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 11:40:57 / Ólöf

Vetrarborgin

Þeir félagar mínir í vinnunni eru sannfærðir um að snjórinnn sem núna hrellir höfuðborgar búa sér mér að kenna. Hann hafi komið með mér að vestan og ég verð bara að búa við það vera  kennt um það. Enda er það sem mest selst núna í Húsasmiðjunni ,snjóskóflur, snjóþotur og sleðar. Einnig hálkueyðir húfur og vettlingar.  Þetta var ekkert spes vika, ég var lasin og slöpp fram eftir vikunni en hékk á kassanum og skalf og svitnaði til skiptis. Er öll að lagast núna. Álfhildur kom suður á föstudaginn og ég held að daman hafi haft mjög gott af að fá mömmu til sín. Af sinni alkunnu snilld bakaði hún tertur og kruðerí og hélt kaffi boð hjá mér í gær sem var nokkuð vel lukkað. Gaman að fá svona fólk sem tekur að sér að gera eitthvað gott í eldhúsinu hjá manni :haha::haha:  Það er annars allt gott af okkur að frétta og lífið er bara nokkuð gott. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2008 11:37:56 / Ólöf

Laugardagsmorgunn

Það er kominn tími á blogg eins og ég las á einni góðri síðu. Það er allt í góðum gír og engar fréttir eru góðar fréttir. Eða þannig. Mér líkar mjög vel í vinnunni og ég held bara að ég falli alveg þokkalega í hópinn sem ég vinn með. Bráðum er ég búin að vera þarna í mánuð og er enn ekki orðin full numa í að glíma við kassann en get þó huggað mig við að ég stend ekki þeim að baki sem byrjaði viku á undan mér og er þó talvert yngri en ég. Það síast líka hægt og rólega inní hausinn á mér hvar hlutirnir eru í búðinni og tilhvers í andsk. þeir eru. Flest fólk sem kemur inn er þægilegt og almennilegt en það koma þvílíkir hausar á milli að það er ótrúlegt að þeir skuli ganga lausir og margt af því fólki virðast nánast vera í sérlegri sendiferð til að hrella afgreiðslufólk. OG virðist gera hvað eina til þess eins að fá útrás eða skeita skapi sínu á öðru fólki. Einnig sé ég einmanna fólk sem kemur þarna bara til þess að fá félagskap og dundar sér við að spá og spekulegra hvað það á að kaupa hvort það eigi að kaupa og til hvers og kaupir svo ekkert. Þetta er yfir leitt sama fólkið aftur og aftur. Annars hafa verið talsverð veikindi á vinnstaðnum og við verið í mannahallæri í vinnunni og mikið mætt á fáum. Indriði hefur verið veikur og ég fór með hann á læknavaktina á miðvikudagskvöldið því mér var farið að ofbjóða. Enda fékk hann sýklalyf og er allur að bragggast. En læknirinn reyndist vera sá góði maður Páll Þorgeirsson sem löngum hefur sinnt læknisstörfum á Hólmavík svo þetta var svolítið sniðugt. En á síðustu helgi fórum við á "kossaballið"(nafngiftin segir sig sjálf) og þar fékk ég aldrei slíku vant vinning. Úttektarbrét hjá Jóa Fel svo ég get farið að höndla sælkerbrauð í dag.  :haha:    Það fylgir því að flytja í svona um hverfi ýmislegt sem maður hefur ekki séð vanist áður, Ég hef orðið að verjast því að það þarf ekki að fylla ískápinn einu sinni í viku :haha: Að það er hægt að stimpla sig út og vinnudagurinn er búin :haha: Það er æðislegt. Engar áhyggjur af því sem úti er. ;) Og svo eru það öll blöðin sem eru borinn í hús hjá okkur. Ég skil ekki í neinum sem kaupir dagblöð í dag ,mér er nóg að fá þessi 2 og lesa þau. Þar eru alveg nógar fréttir fyrir mig. Eftir blaðalestur þessa dags stendur Illugi uppúr. Hann er snillingur. Það er hrein unun að lesa hvernig hann tekur Árna nokkurn Matthísen á beinið í dag í 24stundum og ég vona að það lesi allir þessa grein hans því hún segir allt sem segja þarf en núna þarf ég að fara að koma baunasúpunni á borðið því Sivi á að mæta í vinnu 12.00 svo það er ekki eftir neinu að bíða.:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 15:25:34 / Ólöf

Áramótin í góðum gír

Jæja þá er komið nýtt ár. Það var talsverður gustur á holtinu um áramótin. Samt var skotið talsverðu púðri upp. Hins vegar er rosalegt útsýni hérna og greinilega vinsælt að koma hingað uppeftir til að horfa á "sjóvið" þess vegna var ekki auðvelt að skjóta upp eigin flugeldum eða blysum vegna bíla og fólks sem raðaði sér nálega á veginn og fyrir framan okkur enda fór svo fljótlega við hættum að skjóta upp draslinu til að það lent ekki í bílum og fólki en ef farið var lengra uppa holtið frá veginum þá var ekki stætt svo það gekk ekki. Við gengum því uppá holtið og horfðum á herlegheitin. Það stóð til að hafa hamborgarahrygg en því var breitt snarlega og hafður rússneskur matur að hætti tengdadótturinnar og hann var frábærlega góður og gaman að hafa eitthvað sem er algjörlega gjörólíkt því sem maður er vanur. Við höfum haft róleg og þægileg jól ekki farið neitt og ekki verið pirrandi eða uppáþrengjandi ættingjar :haha: og þar hefur veðrið stjórnað mestu. Við ætluðum að skreppa til Keflavíkur á sunnudaginn en veðrið var svo skelfilegt að það var best að halda sig inni við. En við reynum nú að hressast hvað það varðar á næstu dögum þegar við tökumst á við nýtt ár.:D Eins og venjan er á mínu heimili leggjumst við á bekkinn á nýjársdag og horfum á forsetann. Ég hef alltaf verið svo ánægð með Ólaf . Kaus hann nefnilega á sínum tíma. Fannst hann alltaf besti kosturinn þá og þó ég hafi kynnst Guðrúnu Agnarsdóttur persónulega seinna meir er ég samt fullkomlega sátt við að hafa kosið Ólaf. Hann átti svo frábæra konu sem stóð við hlið hans til að byrja með og þegar Palli okkar var veikur þá barðist hún við sín veikindi og var svo mikil fyrirmynd. Svo dó þessi glæsilega og yndislega kona og forsetinn okkar var svo vængbrotinn sem eðlilegt var. En svo gerðist það að hann náði sér í ekki síðri konu og hefur staðið sig frábærlega á allann hátt. Sérstaklega var ég ánægð með hann í fjölmiðla klúðrinu á sínum tíma, þar var það Óli sem stóð vaktina. Svo eftir ræðuna í dag þar sem hann gefur kost á sér er áfram er ég bara nokkuð sátt.... Gleðilegt nýtt ár elskurnar og takk fyrir það gamla :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Búskaparlok jeijjj
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1562 dögum